Skipurit Rafmanna sýnir hvernig málum er skipað til að ná þeim árangri sem að er stefnt í rekstri fyrirtækisins. Fyrirtækinu er skipt í lárétt svið og lóðrétt svið. Allar skipulagseiningar innan Rafmanna hafa ákveðnu skilgreindu hlutverki að gegna. Þessi hlutverk eru fyrst og fremst sett fram til að auðvelda starfsfólki að vinna saman bæði í viðfangsefnum innan deildanna og verkefnum sem skarast milli deilda.




