Rafmenn hafa áratugareynslu af viðgerðum heimilistækja. Síðastliðin ár hafa Rafmenn til dæmis alfarið séð um allar ábyrgðarviðgerðir fyrir Byko/Elko á Akureyri. Hafðu samband ef þig vantar rafvirkja og við skoðum hvað við getum gert fyrir þig hvort sem um er að ræða hrærivél, bakaraofn, þvottavél, þurrkara, uppþvottavél, ísskáp eða önnur heimilistæki.



