Fréttir

Vinna hafin við Héðinsfjarðargöng

Rafmenn hafa nú hafið vinnu fyrir alvöru í Héðinsfjarðargöngum en stefna Vegagerðarinnar er að opna fyrir umferð 30. september n.k. en verkþáttur okkar átti að hefjast fyrir rúmu ári síðan. Ýmsar orsakir hafa valdið því að verkið hefur tafist t.d. var heill árfarvegur inn í göngunum um tíma sem tafði fyrir borun.

Umrætt verk er það stærsta sem Rafmenn hafa tekið sér fyrir hendur en hér á ferðinni eru Rafmenn, helstu sérfræðingar landsins í raflögnum í jarðgöng. Til gamans má geta þess að Jóhann, eigandi Rafmanna, og Balli Ragnars, starfsmaður okkar, lögðu allt rafmagn í Ólafsfjarðargöng á sínum tíma. Balli var svo í Hvalfjarðargöngum, Rafmenn lögðu allt rafmagn í göngin um Almannaskarð og nú eru það Héðinsfjarðargöng sem eru þá fjórðu jarðgöngin sem Rafmenn og starfsmenn okkar koma að.

Til merkis um umfang þessa verks má nefna helstu magntölur:

Strengir157.110 metrar
Ídráttarrör70.900 metrar
strengstigi11.300 metrar
Raðtengi2.232 stykki
Ljós980 stykki
Stýriliðar387 stykki
Neyðarlampar109 stykki
Stöðuskynjarar95 stykki
Merkjaljós67 stykki
Slökkvitæki48 stykki
Neyðarsímar23 stykki



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning