Fréttir

Fréttir af verkefnum.....

...en af þeim fjölmörgu verkefnum sem Rafmenn hafa unnið við á síðustu misserum þá er vinnu lokið við verslun Símans á Glerártorgi og verslun Europrís. 

Af verkefnum í vinnslu er Íþrótta-akademía Akureyrar á fullu skriði, íbúðir fyrir Búseta við Kjarnagötu halda áfram rísa, vinna við standsetningu verslunar Lyf og heilsu á Glerártorgi og að ógleymdu Hofi – Menningarhúsi.  Af Héðinsfjarðargöngum er það að frétta að illa gengur að bora á milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar og því geta Rafmenn ekki hafið  vinnu í göngunum sjálfum  en áætlað er að sú vinna geti hafist í byrjun næsta árs. Á félagssvæði Íþróttafélagsins Þórs eru verktakar á fullu við gerð frjálsíþróttavallar og nýja knattspyrnuvelli. Þar sjá Rafmenn um alla lagnavinnu og lýsingu á þeim völlum. 

Af nýjum verkefnum þá er að hefjast vinna við 1.áfanga Naustaskóla, Íþróttamiðstöð við Giljaskóla sem og Íþróttamiðstöð á Dalvík. Þannig að nóg er að gera hjá okkur og bjart framundan



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning